Hafa samband
Figaro ehf · Reykjavík

Um Figaro

Sjálfstæð ráðgjöf fyrir fyrirtæki, eigendur og fjárfesta.


Valdimar Hilmarsson, eigandi Figaro ehf
01

Valdimar Hilmarsson

Eigandi og ráðgjafi

Figaro er sjálfstæð ráðgjöf í eigu Valdimars Hilmarssonar. Hann hefur yfir tuttugu ára reynslu af fjármálum, rekstri og ráðgjöf og hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði verðmata, fjármögnunar og samskipta við fjárfesta.

Ráðgjöfin byggir á skýrri greiningu, faglegum vinnubrögðum og persónulegri aðkomu að hverju verkefni. Markmiðið er að veita viðskiptavinum traustan grunn fyrir ákvarðanatöku.

02

Sjálfstæði og nálgun

Figaro starfar sjálfstætt og án tengsla við fjármálastofnanir, kaupendur eða seljendur. Áhersla er lögð á vandaða greiningu, skýra framsetningu og faglegar forsendur.

Í verkefnum þar sem fjármögnun, verðmat eða samskipti við fjárfesta skipta máli vinnur Figaro náið með viðskiptavinum að því að setja upplýsingar fram með skýrum og trúverðugum hætti.

Viltu ræða verkefni?

Figaro tekur að sér afmörkuð ráðgjafarverkefni fyrir fyrirtæki, eigendur og fjárfesta.

Hafa samband →